Vala Friðriksdóttir | 11. maí 2012 |

Lestrarskimanir og samræmd könnunarpróf :)

« 1 af 2 »
 

Elsku mamma og pabbi.

Ég er búin/n að vera mjög dugleg/ur í vikunni. Í listum hjá Dúnu byrjaði ég á pappírsmyndverki, ég  byrjaði á því að mála pappírshólk, síðan braut ég hann saman og klippti svo niður í sex búta (þeir voru að vísu ekki alveg jafnstórir hjá mér en það er alveg í góðu lagi). Ég bjó til flotta mynd með klessulitum og svo leiraði ég líka aðeins.
 

Í stærðfræði var ég dugleg/ur að vinna að markmiðum mínum. Tveir hlutar af samræmdu könnunarprófi voru þar á meðal.


Í íþróttum hjá Kolla var rosalega gaman, ég var að undirbúa mig fyrir sundprófið, ég æfði mig í flugsundi og baksundi og það gekk alveg ljómandi vel.


Í íslensku var ég líka mjög dugleg/ur að vinna að markmiðum mínum.  Svo tók ég líka einn hluta af samræmdu könnunarprófi.


Ég fór í tvær skimanir hjá Hrafnhildi Þorsteins. Orðarún var lesskilningspróf og svo fór ég í lestrarhæfninsprófið LH-60 (en það er sama prófið og ég tók í síðast haust).


Í vikunni verður mikið um að vera hjá nemendum í 3. bekk, þeir fara í tvær skimanir til Hrafnhildar Þorsteins. Bekkum verður skipt í þrjá fimm manna hópa, hún byrjar á að leggja fyrir lestrarhæfnisprófið LH-60 og svo lesskilnigspróf.


Anna hjúkrunarkona kom og fræddi mig um líkamann minn, tilfinningarnar mínar og að það sé í lagi að segja NEI.  Það var mjög gaman að hlusta á Önnu.


Í tónmenntartíma fór ég í allskonar leiki, s.s. spegill, klappleikinn og flækjuleikinn. 

Ég ætlaði að fara í heimsókn til Stínu á bókasafnið, en sá tími féll því miður niður. En ég stefni á að fara til hennar í næstu viku :)


Annars er ég búin/n að standa mig vera rosalega vel í vikunni eða það segir Vala, Alda og Árný allavega :)
 

Með góðri kveðju,

Díana Jórunn, Elín Victoría, Friðrik Heiðar, Guðmundur Ragnar, Halldór Víkingur, Helgi Sigurður, Hilmar Tryggvi, Júlíanna Steinunn, Kristín Lilja, Lárus, Matthías, Róbert Máni, Signý, Sigurður Kári og Svanur Eðvald,


Skilaboð frá Völu

Í næstu viku byrjar prófatímabilið sjá kennsluáætlun :)

 

 

Vala Friðriksdóttir | 04. maí 2012 |

Fumbyggja tónlist og fjöruferð

« 1 af 2 »
 

Elsku mamma og pabbi.

Ég er búin/n að vera rosalega dugleg/ur í vikunni.  Í íslensku var ég dugleg/ur að vinna að markmiðum mínum. Einn hluti af samræmdu könnunarprófi var þar á meðal.

Í listum hjá Dúnu gerði ég  ástralska frumbyggja mynd. Hún leyfði mér að hlusta á frumbyggja tónlist og svo fékk ég að prófa blásturshljóðfærið hennar. 


Í stærðfræði vann ég að markmiðum mínum um þróun talna og gekk það bara ágætlega.


Í íþróttum hjá Kolla fór ég í gönguferð og allskonar útileiki. Það var mjög skemmtilegt því að veðrið var svo gott. Sundkennslan féll niður þessa viku þar sem verið var að laga sundlaugina.

 

Ég fór í vettvangsferð á Stóru Grund til Heiðu og Kalla. Þau leyfðu mér að halda á lömbunum,  ég fékk líka að gefa kindunum hey og svo lék ég mér í smá stundi í hlöðunni. Það fannst mér ýkt cool.
 

Nestið mitt borðaði ég svo úti á túni og þegar ég var búin/n með það fór ég að leika mér í fjörunni. Þar var margt að finna :)  Á heimleiðinni kom ég aðeins við á leiksvæðinu fyrir framan galdragarðinn og þar lék ég mér í smá tíma.

Í matreiðslutíma var haldið pizzapartý, ég bauð krökkunum í 1. - 2. bekk að vera með. Ég bakaði pizzu og ég mátti setja allt það sem ég vildi ofan á hana. Ég blandaði sumardrykk og í eftirrétt bjó ég til súkkulaði- og karamellubúðing. Á meðan pizzan var að bakast raðaði ég upp borðum og stólum. Að því búnu dekkaði ég upp borðið.

 

Mér ásamt öllum krökkunum í skólanum var boðið í formlegt boð í Hnyðjuna,  Ingibjörg sveitastjóri tók á móti okkur öllum og kynnti fyrir okkur þá starfsemi sem fram fer í húsinu. Ég söng ásamt öllum hinum krökkunum nokkur vorlög sem ég var búin að æfa í söngstund fyrr um morguninn og fékk ís að launum :)

Á heimleiðinni kom ég svo við í kirkjunni og æfði  lagið sem ég ætla að spila á vortónleikunum. 


Annars er ég búin/n að standa mig vera rosalega vel í vikunni eða það segir Vala, Alda og Árný allavega :)

 

Með góðri kveðju,

Díana Jórunn, Elín Victoría, Friðrik Heiðar, Guðmundur Ragnar, Halldór Víkingur, Helgi Sigurður, Hilmar Tryggvi, Júlíanna
Steinunn, Kristín Lilja, Lárus, Matthías, Róbert Máni, Signý, Sigurður Kári og Svanur Eðvald,


Skilaboð frá Völu :)

Í vikunni verður mikið um að vera hjá nemendum í 3. bekk, þeir fara í tvær skimanir til Hrafnhildar Þorsteins. Bekkum verður skipt í þrjá fimm manna hópa, hún byrjar á að leggja fyrir lestrarhæfnisprófið LH-60 og svo lesskilnigspróf.


Á fimmtudaginn og föstudaginn ætlum við að heimsækja Stínu á bókasafninu og biðja hana um að fræða okkur  um bækurnar á safninu og starfsemi bókasafnsins.


Anna Hjúkrunarkona ætlar að koma að heimsækja okkur á fimmtudag. Þannig að þið sjáið, það er nóg um að vera hjá okkur hér í 3. bekk.



 

Kolbeinn Skagfjörð Jósteinsson | 06. janúar 2012 |

Íþróttir

Gleðilegt nýtt ár öll sömul og takk fyrir það gamla. Nú ætla ég að vera duglegri að skrifa inn á það sem við erum að fást við hér í íþróttum. Við fórum í einn tíma í íþróttir í þessari viku, í tímanum vorum við allskonar hreyfileikjum. Við fórum líka í þraut sem snýst um að allir liggja á gólfinu í röð með hendur uppi lofti og svo er einn settur ofan á hendurnar þeirra og þau flytja hann yfir röðina.
Kv Kolli 
Kristjana Eysteinsdóttir | 07. október 2011 |

skólahlaup og lýsingarorð :)

upphitun fyrir skólahlaupið
upphitun fyrir skólahlaupið
Komiði sæl
Undanfarin vika hefur verið heldur fjörleg hér í 3. bekk og mikill galsi í nemendahópnum.
Seinni hluta vikunnar höfum við svolítið verið að minna hvort annað á og rifja upp reglurnar sem við settum okkur í byrjun skólaárs .
Mælirinn sem við settum upp á skólatöfluna fyrir svolitlu síðan og telur stigin sem nemendur vinna sér inn með því að vinna hljóðlega, smá mjakast upp og við ætlum að leggja okkur fram um að ná honum í 10 stigin sem fyrst.

Í vikunni höfum við verið að vinna með lýsingarorð í íslensku. Lýsingarorðin geta verið svolítið flókin á köflum, en vekja einnig mikla lukku. Við bjuggum til sögu um vettvangsferð 3. bekkjar sem nemendur „skreyttu" svo með fjölbreyttum lýsingarorðum. Það er ótrúlega skemmtilegt að sjá og velta því fyrir sér hvað sögurnar lifna við og verða líflegar ef við vöndum okkur og setjum inn viðeigandi lýsingarorð.

Í listum erum við að búa til hristur. Það gengur rosalega vel :)

Á þriðjudeginum kynntu nemendur sjávarlífverurnar sem þau hafa verið að afla sér upplýsinga um í samfélagsfræði. Þetta verkefni hepnaðist ótrúlega vel og eiga nemendur hrós skilið fyrir metnað sinn!

Á miðvikudeginum tóku svo nemendur og starfsfólk skólans þátt í norræna skólahlaupinu og stóðu sig með prýði :)
Að loknu hlaupi bauð Kaupfélag Steingrímsfjarðar svo nemendum upp á niðurskorið grænmeti og ávexti og Arion banki bauð upp á vatn í sjómannsbrúsa.
Á fimmtudeginum lásu nemendur upp haustsögur sínar. Eftir það tókum við lagið saman og skiptumst á að slá taktinn á trommur.

Nemendur hafa ákveðnar skoðanir á því hvaða lög skulu sungin og mega endilega koma með texta að heiman til að bæta við í sönglagasafnið okkar.

Í dag var lögð fyrir nemendur stutt stafsetningaræfing. Helmingur nemenda fór í tölvutíma þar sem þeir teiknuðu sjálfsmynd í paint og í samfélagsfræði héldum við áfram með sjávarmyndirnar okkar.


Bestu kveðjur og góða helgi
Kristjana


 
Kristjana Eysteinsdóttir | 16. september 2011 |

Líf og fjör :)

Leiksýningin Gýpugarnagaul
Leiksýningin Gýpugarnagaul
« 1 af 3 »
 

Komiði sæl

Það er líf og fjör hjá okkur í 3. bekk.
Á mánudaginn skelltum við okkur á leiksýningu Möguleikhússins Gýpugarnagaul.
Sýningin fjallaði um hana Gýpu sem gleypir allt í sig og er sífellt svöng. 

Í þemaverkefni okkar um Fjöruna erum við núna að fjalla um hinar ýmsu fisktegundir.
Nemendur eru að vinna saman í hópum og afla sér upplýsinga um ákveðnar tegundir fiska. 

Í náttúrufræði fjölluðum við um árstíðirnar og bjuggum í sameiningu til mynd um árstíðirnar fjórar sem núna prýðir vegg skólastofunnar. Ætlunin er að nota þessa mynd fyrir afmælisdagatal og munum við því bæta við ljósmyndum af nemendum á þær árstíðir sem þeir eiga afmæli. 

Við teiknuðum myndir af fjölskyldumeðlimum okkar í enskutíma og bættum inn enskum heitum.
Við tókum lagið saman á fimmtudaginn og í dag föstudag fór helmingur bekkjarins í tölvutíma.

Í upplýsingatækni á föstudögum skiptast nemendu á að fara í tölvur og val.
Við notumst mikið við vef námsgagnastofnunar www.nams.is og það fjölbreytta kennsluefni sem þar er.


Eins og fram kemur á heimsíðu skólans hefur komið upp sú skemmtilega hugmynd að velja nöfn á rými og stofur skólans. Vilji er til þess að velja nöfn tengd náttúrunni, kennileitum og örnefnum á og við Hólmavík. Gaman væri ef þið foreldrar mynduð ræða þetta við nemendur, ömmur og afa, frænkur og frændur og koma með hugmyndir að nöfnum.
Öllum áhugasömum er velkomið að senda inn hugmyndir á netfangið hildur@holmavik.is .Nöfnin verða svo kynnt þegar þar að kemur.

 

Á heimasíðu skólans http://strandabyggd.is/grunnskolinn/ má sjá nokkrar myndir úr skólastarfinu. Ég reyni að vera dugleg að setja reglulega inn nýjar myndir.


Ég vil minna á að ykkur er að sjálfsögðu alltaf velkomið að hafa samband eða kíkja við hjá okkur :)

Hafið það sem allra best
Kveðja Kristjana

Kristjana Eysteinsdóttir | 11. september 2011 |

Vettvangsferð og viðtöl

« 1 af 2 »
 

Kæru foreldrar

Í síðustu viku héldum við áfram vinnu okkar um fjöruna og hafið. Við skoðuðum hvernig Hólmavík liggur við sjóinn og ræddum um það hvað það felur í sér að búa í sjávarþorpi.


Við fórum í vettvangsferð um nágrenni skólans og týndum lauf og ber. Og smökkuðum einnig á bláberjunum sem hægt er að finna rétt við skólann.

Í tjáningartíma á fimmtudaginn tóku nemendur viðtal við hvorn annan. Í framhaldi af því kynnti hver nemandi einn bekkjarfélaga sinn fyrir öllum hópnum.

 

Gaman er að sjá hvað nemendur eru fljótir að tileinka sér nýja vinnufyrirkomulagið með Skjatta bókunum.  Það hentar greinilega mörgum að vinna af sér heimanámið í skólanum og þau eru mjög meðvituð um það og leggja sig fram um að vinna vel í skólanum. Alveg frábært :)

Sumir hverjir náðu ekki alveg makmiðum sínum og tóku því bækurnar með sér heim á föstudaginn.  Gott væri að búið væri að klára heimavinnuna og bókunum skilað ekki seinna en á fimmtudegi. 


3. bekkur var úti í stórfiskaleik. Nemendum hafði verið fengið það hlutverk að leika gæludýr og sá sem „var hann" átti að giska á dýrategundina.
Eitthvað erfiðlega gekk að átta sig á því hvaða dýr einn nemandinn var. Svo að hann var beðinn um að segja fyrstu stafina. Segir hann hópnum að fyrstu stafirnir séu k og v (hvolpur).
Smá þögn slær á hópinn og allir hugsa sig um þar til heyrist kallað úr nemendahópnum „ertu að leika kvenmann?"

Vegna þess hversu margar kennslubækur eru í gangi í íslensku og stærðfræði verður náminu þannig háttað að ákveðið viðfangsefni er tekið fyrir hverju sinni,  svipað eins og síðasta vetur. Nemendur verða því allir að vinna með sömu þættina en hver og einn setur sér sín markmið og vinnur þar sem hann er staddur.


Á mánudaginn ætlum við að skella okkur á leiksýninguna Gýpugarnagaul í boði foreldrafélaga leik- og grunnskólans :)

Bestu kveðjur
Kristjana

 

Kristjana Eysteinsdóttir | 11. september 2011 |

Fjaran og hafið

 

Komiði sæl

Við í 3. bekk höfum átt notalega viku og unnið að skemmtilegum og lærdómsríkum verkefnum í vikunni.
Mánudagurinn fór að miklu leyti í það að útskýra fyrir nemendum fyrirkomulagið á Skjatta og að setja sér markmið í stærðfræði fyrir vikuna.

Misvel gekk hjá nemendum að ná þeim markmiðum sem þeir settu sér fyrir vikuna.
Við erum að læra af þessu og ætlunin er einmitt að sjá hversu mikið efni hver og einn nemandi ræður við. Ég hef tekið þá ákvörðun að þeir nemendur sem settu markið full hátt fyrstu vikuna fari ekki með heimalærdóminn heim, heldur aðlagi næstu viku að því hvernig sú fyrsta gekk.

Í næstu viku munu nemendur setja sér markmið bæði í íslensku og stærðfræði og stefni í að ekki náist að klára í skólanum, munu bækurnar fylgja með heim.


Nemendur í Grunnskólanum á Hólmavík hafa það fyrir venju að hittast einu sinni í viku og syngja saman. Í vetur munum við hefja hverja viku á sameiginlegri söngstund kl 8:10 á mánudögum.


Í listum höfum við verið að búa til sandmyndir og viðfangsefnið er að sjálfsögðu fjaran og hafið.

Við fórum í leiki með hljóðfæri og æfðum okkur á að halda sama takti. Það vakti mikla lukku.

Á fimmtudaginn var svo gott veður að við gátum með engu móti haldið okkur innandyra. Við skelltum okkur því út á skólalóð í nokkra leiki. Eftir hádegi ákváðum við einnig að fara út og tókum þá bækurnar með. 

Á föstudaginn fórum við í vettvangsferð niður á bryggju. Sáum krossfiska og helling af sílum. Við kíktum einnig aðeins inn í beitningaskúrana þar sem menn voru við vinnu. 
 

Á föstudaginn í næstu viku er starfsdagur í skólanum og því frí hjá nemendum.

Bestu kveðjur
Kristjana

Kristjana Eysteinsdóttir | 11. september 2011 |

Fyrsta vika skólaársins

 

Kæru foreldrar

Fyrsta vika skólaársins hefur gengið ljómandi vel og ekki annað að sjá en að allir séu sælir og glaðir eftir gott sumarfrí og sáttir við að koma í skólann aftur :)

Við byrjuðum vikuna á því að spjalla saman og ákveða hvaða reglur við vildum hafa í bekknum í vetur. Nemendur voru ekki lengi að segja til um hvernig þau vilja hafa hlutina og völdu reglur bekkjarins upp á eigin spýtur. Ég læt þær fylgja með í viðhengi ef þið viljið kíkja á þær.
 
Við höfum notað þessa fyrstu kennsluviku í rólegheitarvinnu og lagt áherslu á vettvangsferðir.
Fyrsta viðfangsefni vetrarins er Fjaran og hafið . Þar sem það viðfangsefni er rétt við nefið á okkur lá beinast við að fara út og skoða fjörurnar hér í kring. 

 

Í dag föstudag gerðum við krossgátuverkefni í íslensku, höfðum val og fórum í minnisleiki.

Nú hafa allir foreldrar væntanlega séð nýju skipulagsbók nemenda Skjatta.
Þessa bók þarf að halda upp á og fara vel með því hún á að fylgja nemendum í allan vetur og í henni verða skrifaðar áætlanir hverjar viku fyrir sig.


Í næstu viku mun ég útskýra fyrir nemendum hvernig  ætlunin er að nota Skjatta.
En nemendur koma til með að setja sér markmið fyrir hverja viku sem skrifuð verða í bókina. Nái þau markmiðum sínum á skólatíma hafa þau unnið af sér heimanám vikunnar.
Nái þau ekki að klára það sem sett var upp, vinna þau það upp heima.

Ég vil þó leggja áherslu á að ekki er ætlast til þess að eytt sé löngum tíma í heimanám, og heimanám á ekki að kosta „blóð, svita og tár".
Ef illa stendur á eða að markmið vikunnar nást ekki einhverjahluta vegna þá er lítill kassi í hverri vikuopnu (í Skjatta) þar sem foreldrar geta komið skilaboðum til kennara.
Þá er hægt að aðlaga markmið næstu viku að því.
Vilji nemendur vinna lengra en markmiðin segja til um, er það að sjálfsögðu leyfilegt líka :)

Við í 3. bekk ætlum að fara rólega í heimanámið í næstu viku og byrja á því að setja okkur markmið í stærðfræði. Auk þess lesa nemendur heima á hverjum degi og skrifa orðin sín í stílabókina sem kemur heim með nemendum í næstu viku.


Bestu kveðjur og góða helgi
Kristjana

Eldri færslur
Nemendur Atburðir
« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Næstu atburðir

Vefumsjón