Vala Friđriksdóttir | 09. desember 2011 |

Jólatónleikar og piparkökur

« 1 af 2 »
 

Á mánudeginum voru allir mjög duglegur að vinna að markmiðum sínum í íslensku og stærðfræði. Í íþróttum hjá Kolla var farið í hringþjálfun og leiki.


Á Þriðjudeginum var stafurinn N n kynntur. Nemendur kepptust við að finna orð sem áttu N n sem fyrsta staf og voru þau öll skrifuð upp á töflu. Þá myndskreyttu þau fyrstu myndina í jóladagatalinu. Hjá Dúnu byrjuðu þau á að föndra snjókorn og koma þau til með að klára þau næsta mánudag. Þá fórum við í ensku og unnum með helstu hugtök líkamans s.s. augu, eyru, nef o.s.frv.


Á miðvikudeginum unnu nemendur að markmiðum í stærðfræði og íslensku. Skrifuðu litla jólasögu og myndskreyttu hana. Í í þróttum var farið í Tarzan leik og það höfðu þau eflaust gaman af. Eftir hádegismat myndskreyttu þau fyrstu myndina í frásögninni um fæðingu Jesús.

Jólatónleikar tónskólans voru miðvikudags- og fimmstudagskvöld og tóku nemendur í 1. - 2. bekk að sjálfsögðu þátt og stóðu sig með prýði.

Á fimmtudeginum var komið að jólabakstri, nemendur bökuðu piparkökur eyrnaslapa og gerðu kornflexkökur öskubusku. Það gekk ljómandi vel. Eftir hádegið myndskreyttu nemendur aðra mynd sem tengdist fæðingu Jesús.

Á föstudeginum byrjuðum við á því að skreyta piparkökurnar, unnum upp ókláruð verkefni og fengum svo frjálst vel þar sem allir voru búir að vera svo duglegir og stilltir í vikunnu :)
 

Gaman að segja frá því að við tókum þátt í vísnasamkeppni grunnskólanema. Nemendur fengu fyrripart sem þeir svo botnuðu, en sendir voru fjórir botnar.
 

Litlu jólin fara fram  í Félagsheimilinu fimmtudaginn 15. desember kl. 14:00. Mikilvægt er að nemendur mæti tímalega þar sem atriði okkar er fyrst á dagskrá.


Næsta föstudag er jólasamvera í skólanum, hún hefst kl. 11:00 og eru til 12:00. Þá mega nemendur koma með gos, góðgæti í poka og pakka til að skiptast á fyrir u.þ.b. 500 kr


Takk fyrir vikuna,


Með kveðju,

Vala

Vala Friđriksdóttir | 30. nóvember 2011 |

Video og vetrafrí

« 1 af 2 »
 

Kæru foreldrar


Ég er mjög stolt af öllum nemendunum  mínum, þeir stóðu sig mjög vel á opnu húsu síðast liðin miðvikudag. En þá lásu þeir eina setningu sem þeim fannst vera lýsandi fyrir einstakling með ADHD.


Á mánudeginum voru allir mjög duglegur að vinna að markmiðum sínum í íslensku og stærðfræði. Stafurinn O o var kynntur og fundu nemendur ,,slatta" af orðum sem áttu O sem fyrsta staf. Í íþróttum hjá Kolla var stöðvaþjálfun þar sem gróf og fínhreyfingar voru þjálfar ásamt samhæfingu. Eftir hádegi voru ókláruðu verkefni tengd ADHD vikunni unninn.

Á þriðjudeginum unnu allir að marmiðum sínum bæði í íslensku og stærðfræði og náðu flest allir að klára þau J. Hildur kom til okkar með sameiginlegu myndina og allir fengu að velja sér reit og teikna mynd inn í hann. Í ensku var unnið verkefnablað um villt dýr og gekk það ljómandi vel.

 

Á miðvikudeginum var leti dagur hjá okkur þar sem allir voru búnir að vera svo rosalega duglegir í vikunnu. Við horfðum á myndina ,,Santa buddies" en hún fjallar um fimm hvolpa sem hjálpa til við að bjarga jólunum J. Í íþróttum voru þau í leikjum. Eftir hádegið var svo opið hús þar sem verk nemenda úr ADHD vikunni voru til sýnis.

 

Vikan var ekki lengri að þessu sinni þar sem það var vetrafrí fimmtudag og föstudag.  Vonandi höfðu allir það gott í fríinu. Sjáumst hress á mánudaginn J

Bestu kveðjur,

Vala

Vala Friđriksdóttir | 25. nóvember 2011 |

Alfa og Omega

« 1 af 2 »
 

Kæru foreldrar

Mánudagurinn var frekar hefðbundin hjá okkur, við byrjuðum á því að fara í sögnstund, í íslensku var stafurinn E e kynntur og í sprota lærðum við að draga frá. Til að byrja með var það svolítið erfitt, en eftri smá þjáfun ekkert mál J. Í þemaverkefninu ,,Um mig og þig" teiknuðu þau myndir af sér sem ,,smá barn".

Allir ótrúlega duglegir að vinn að markmiðum í íslenskuJ

Þriðjudagurinn byrjaði heldur óvenjulega hjá okkur, við fórum í myndatöku hjá Bjarna Jónssyni ljósmyndara. Hann tók einstaklingsmydir af okkur ásamt bekknum í heild. Það var smá erfitt að sitja kyrr J.  Eftir myndatökuna unnum við að markmiðum okkar í íslensku. Í listum hjá Dúnu unnum við með línur og áferð. Hjá Kolla í íþróttum fórum við í stöðvaþjálfum þar sem við æfðum gróf og fínhreyfingar. Það gekk bara vel hjá okkur. Eftir hádegi æfðum við okkur aðeins í enskum hugtökum tengd líkamannum og rifjuðum upp litina og húsdýrin.  

Á miðvikudeginum komu þær Hildur og Jóhanna í heimsókn til okkar með fyrirlestur um ADHD og útfrá honum unnum við nokkur verkefni honum tengdum. Við teiknuðum hendur okkar og inn í þær skrifuðum við eina setningu um einkenni ADHD. Við vorum mjög dugleg að vinna að markmiðum okkar í stærðfræði. Í íþróttum fórum við í leiki. Eftir hádegið teiknuðum við upp fæturnar okkar á stífan pappír, það vakti mikla kátínu því að sumum kítlaði svo mjög mikið J. Þá klipptum við þær út og skreyttum með alls konar munstrum.

Á fimmtudeginum gerðum við myndasögum og ADHD. Teiknuðum myndir og skrifuðum atburðarás . Í ensku fórum við inn á náms.is um unnum verkefni í ensku.

Nemendur að teikna myndasögu um ADHD

Á föstudeginum teiknuðum við sjálfsmyndir, perluðum og gerðum tengi verkefni en í því erum við að tengja á milli talna og það finnst okkur mjög gaman. Í samverustundinni með Bjarna skólastjóra horfðum við á myndina Alfa og Omega :)
 

Eins og þið hafið kannski orðið vör við kæru foreldrar  þá er AHDH vikan í fullum gangi hjá okkur í grunnskólanum. Á miðvikudaginn verður opið hús hjá okkur frá kl. 13.00 - 14:00 og hvet ég ykkur til að kíkja við og skoða verk nemenda úr ADHD vikunni.


Vil minna á að jólaföndur Foreldrafélagsins verður haldið á  mánudaginn 28. nóv. kl. 18:00  í félagsheimilinu

Vetrarfrí Grunnskólans verður fimmtudaginn 1. des. og föstudaginn 2. des.


Kærar kveðjur, 
Vala


 

Vala Friđriksdóttir | 18. nóvember 2011 |

Dagur íslenskrar tungu :)

« 1 af 2 »
 

Kæru foreldrar

Eins og undanfarnar vikur er búið að vera nóg um að vera hjá í  1. - 2. bekk.


Við byrjuðum vikuna á því að fara í sameiginlega söngstund og sungum lög sem nemendur í 4. bekk völdu. Stafurinn V v var kynntur, nemendur fundu mörg orð sem áttu stafinn V v sem fyrsta staf. Þá unnu nemendur að markmiðum í stærðfræði. Í náttúrufræði kláruðu nemendur dúkkulísurnar  og nú hafa allir klárað að mála sjálfsmyndina. Nemendur klipptu úr hús úr kartoni og byrjuðu að innrétta það.


Á þriðjudeginum unnu nemendur að markmiðum sínu í íslensku og eftir matinn fórum við í ensku.


Dagur íslenskrar tungu var á miðvikudeginum og gerðum við margt skemmtilegt honum tengt.

Dagur íslenskrar tungu var á miðvikudeginum og gerðum við margt skemmtilegt honum tengt. Nemendur byrjuðu á því að lesa sögurnar sínar um sauðkindina. Þá fluttu þau ljóð/vísu að eigin vali og gekk það ljómandi vel hjá þeim. Eftir matinn botnuðu þau vísuna:


Kannast þú við köttinn minn?                            Kannast þú við köttinn minn?
Kátur löngum er hann.                                     Kátur löngum er hann.

Hann er svo stór kötturinn.                               Langur og stuttur kötturinn.
Og svo fallega ól ber hann.                                Er minn fallegi vinur.

Kannast þú við köttinn minn?                            Kannast þú við köttinn minn?
Kátur löngum er hann.                                     Kátur löngum er hann.
Sætur er hann vinurinn.                                   Fallegur er feldurinn.
Og augun grænu ber hann.                                Sem ber hann.


Mér fannst þetta takast bara vel hjá þeim :)
                                                                                                          

 

Nemendur unnu einnig að markmiðum sínum í stærðfræði og teiknuðu upp hendur á stífan pappír og lituðu þær í skrautlegum litum.


Á fimmtudeginum myndskreyttu nemendur ljóð í verkefnabókina sína „Sín ögnin af hverju". Í upplýsingatækni fór nemendur í einfaldan eða tvöfaldan sérhljóða. Í val fóru flest allir í lego.


Á föstudeginum var lítið lært við byrjuðu daginn á því  horfðum við á dvd myndina Barbie og skytturnar þrjár.  Eftir matinn máluðum við trommurnar okkar.   


Takk fyrir vikuna krakkar mínir ég er mjög stolt af ykkur öllum, þið standið ykkur frábærlega vel.                                                                

Bestu kveðjur, Vala

Vala Friđriksdóttir | 11. nóvember 2011 |

Lestrardagbćkur og foreldraviđtöl

« 1 af 2 »
 

Kæru foreldrar

Það var mikið að gera hjá okkur í síðustu viku þá svo að hún hafi verið frekar stutt. Við byrjuðum vikuna á því að fara í söngstund og sungum lög sem nemendur í 3. bekk völdu. Þá unnu nemendur að markmiðum sínum í íslensku og stærðfræði. Þeir sem  náðu ekki klára prófin sem voru í síðustu viku tækifæri til þess að klára þau.

 Ester kom í heimsókn til okkar og gaf okkur öllum lestrardagbók,en í hana má skrá allar þær bækur sem lesnar eru. Hvort heldur sem barnið les hana sjálfur eða einhver gerið það fyrir það.

Á þriðjudeginum unnu nemendur að markmiðum sínu í stærðfræði og eftir útiveru fóru þau í listir.

Miðvikudagurinn byrjaði á stærðfræði könnun. Í nestistímanum kláruðum við að lesa bókina um hann Einar Áskell og leynivinurinn. Þá tóku allir lestrarskimunina Leið til læsis.

Á fimmtudeginum var starfsdagur kennara

Á föstudeginum voru foreldraviðtöl og mikið var gagnlegt og gaman að fá að hitta ykkur foreldrar og ræða við ykkur um nám barnanna.

Ég er mjög stolt af öllum litlu englunum mínum þeir stóðu sig allir frábærlega vel í vikunnu. Knús á ykkur öll J

Bestu kveðjur, Vala

Vala Friđriksdóttir | 04. nóvember 2011 |

Fyrstu prófin :)

« 1 af 2 »
 

Kæru foreldrar


Síðasta vika gekk ljómandi vel.  Á mánudeginum unnum við að markmiðum okkar í íslensku og stærðfræði.

Svo kláruðum við dúkkulísurnar okkar og eru þær flestar komnar upp á vegg.


Í vikunni fóru nemendur í nokkrar kannanir. Á þriðjudeginum tóku nemendur í 1. bekk sína fyrstu könnun. Það var læsisskimun og stóðu þau sig með prýði. Eftir hádegi unnu nemendur í markmiðum sínum. Stafurinn M -m var kynntur.      


Á miðvikudeginum fóru nemendur í 2. bekk í læsisskimum, en fyrsti bekkur fór í skriftarkönnum. Eftir hádegi fórum við í ensku. Við lærðum heitin á litunum og svo ritjuðum við upp tölustafina frá 1 upp í 10. Þetta gekk allt saman mjög vel.


Fyrsta prófið allir mjög einbeittir :)


Á fimmtudeginum átti nemendur að taka stafsetningakönnun og könnun í hugtakaskilningi en nemendur unnu þess í staðin að markmiðum sínu í íslensku og stærðfræði.

 

Á föstudeginum fóru nemendur í hraðlestrarpróf, þeir fóru í stafsetningakönnun og könnun í hugtakaskilningi.  Í tónmennt fórum við í leiki og skemmtu við okkur vel. 

Eins og sjá má þá leikur Hrafnkatla sól, Þorsteinn járnsmið og Miro kengúru :)

Annars gekk vikan ljómandi vel hjá okkur og allir mjög duglegir.
 

PS. Á þriðjudaginn verð ég íleyfi. Á fimmtudaginn er starfsdagur kennara en þá er frí hjá nemendum. Á föstudaginn eru svo foreldraviðtöl, þá fá foreldrar í hendurnar einkunnrablað með


Bestu kveðjur, Vala

 

 

Vala Friđriksdóttir | 28. október 2011 |

Ţemadagar

 

Kæru foreldrar


Það er búið að vera mikið um að vera hjá okkur í síðustu viku.


Á mánudeginum unnum við að markmiðum okkar í íslensku og stærðfræði. Í náttúrufræðr  héldum við áfram að vinna með dúkkulísurnar okkar og eru þær nú flest allar komnar í föt :)


Á þriðjudeginum var bókstafurinn Ú - ú  kynntur. Skrifaðar voru nokkrar línur í skriftarbókina og ljóð myndskreytt í verkefnabókinn Sín ögnin af hverju.

Hrafnhildur Kría afmælisbarn vikunar en hún varð 7 ára síðast liðin þriðjudag :)


Á miðvikudegi, fimmtudegi og föstudegi  fóru svo þemadagar fram,  en þá fóru nemendur í þær smiðjur sem þeir voru búnir að velja sér.  Þessa daga lásu nemendur ekki í skólanum.


Í næstu verður prófavika hjá okkur, sjá nánar kennsluáætlun fyrir vikuna.

                                                                                                                    Takk fyrir vikuna ;)

                                                                                                                                             Kveðja, Vala

Vala Friđriksdóttir | 21. október 2011 |

Video og popp í lok vikunar :)

« 1 af 2 »
 

Kæru foreldrar


Síðasta vika gekk ljómandi vel, allir voru mjög  duglegir að vinna að markmiðum  sínum .


Nemendur stöfuðu tveggja, þriggja og fjöggra stafa orð og gekk það mjög vel. Þeir skrifuð nokkrar línur í skrifarbókina sína, myndskreyttu ljóð í ljóðabókina sína. Svo voru orðmyndirnar og og ekki voru kynntar. Spjölluðum sama um hollan og óhollan mat, hvað er gott og hvað er slæmt fyrir tennurnar okkar.


Fórum í tónmennt, hlustuðum á fjögur hljóðfæri og greindum hvort að þau gæfu frá sér djúpa eða háa tóna (má þar meðal annars nefna fiðlu, kontrabassa og þverflautu). Tengdum saman eins nótur. Við æfðum okkur að syngja lögin sem tekin eru fyrir í söngstund.            


Við vorum með tvö afmælisbörn í vikunni. Á fimmtudeginum sungum við afmælissönginn fyrir Hrafnkötlu og svo fyrir Þorsteinn á föstudeginum.


Við enduðum svo vikuna á því að horfa á myndina Rio.

Mikil áhersla er lögð á að nemendur lesi á hverjum degi bæði í skólanum sem og heima. Æfingin skapar meistarann og mikilvægt er að nemendur nái góðum tökum á lestrinum.  


Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag varða svo þemadagar hjá okkur. Á þriðjudaginn fá svo allir heim með sér upplýsingar og skipulag um þemadagana. Hver á að vera hvar hvernær o.s.frv.                                          


Kærar kveðjur, Vala

Vala Friđriksdóttir | 14. október 2011 |

Trommur og dúkkulísur

« 1 af 2 »
Kæru foreldrar 


Eins og undanfarnar vikur höfum við verið að vinna að fjölbreyttum verkefnum.


Mikil áhersla er lögð á að nemendur lesi á hverjum degi bæði í skólanum sem og heima. Æfingin skapar meistarann og mikilvægt er að nemendur nái góðum tökum á lestrinum.


Í vikunni voru allir duglegir að vinna að markmiðunum sínum bæði í íslensku og stærðfræði.

Stafurinn R - r kynntur. Nemendur unnu verkefnablöð sem reyndu á fínhreyfingar þeirra. Í heimakrók voru sögurnar um Sæskrímslið lesnar. Nokkur orð sem áttu R - r sem fyrsta staf skrifuð í orðasafnið.


Nemendur stöfuðu tveggja, þriggja og fjöggra stafa orð og gekk það rosalega vel. Þeir skrifuð nokkrar línur í skrifarbókina sína.


Myndskreyttu ljóð í ljóðabókina sína og fóru í tölvutíma.

Gerðu dúkkulísu af ,,mömmu" sinni með þau í maganum. Máluðu trommurnar sínar og enduðum svo á því að fara í tónmennt. Þar voru þau að læra um ta og ti-tí. Þau komust að því að ti-tí fer helmingi hraðar en ta :)


Minni á heimasíðu skólans, þar má meðal annars sjá myndir af skólastafi okkar.


Hópnum var skipt í tvennt ta og ti-tí og svo gengu þau í takt við hljóminn, þau komust að því að ti-tí er helmingi hraðari en ta.

Ég verð í leyfi þriðjudaginn 18. október.

Kærar kveðjur,
Vala

Vala Friđriksdóttir | 07. október 2011 |

Gullskórinn og norrćnna skólahlaupiđ

« 1 af 2 »
 

Kæru foreldrar


Vikan gekk ljómandi vel :)

Við vorum mjög dugleg að vinna að markmiðum okkar í vikunni bæði í íslensku og stærðfræði.  Í stærðfræði fengu nemendur í 1. bekk bókina Kátt er í Kynjadal en nemendur í 2. bekk nýja Sprotabók.


Á  þriðjudeginum var stafurinn I- i  kynntur. Þá unnu nemendur verkefnablöð sem reyndu á fínhreyfingar þeirra.

Á miðvikudeginum fórum við meðal annars í skrift, skrifuðum nokkur orð sem áttu I - i sem fyrsta staf. Svo fórum við í stopp dans, það var rosalega gaman.


Við tókum þátt í norrænna skólahlaupinu og stóðum okkur með prýði. Eftir hádegið var gullskórinn afhentur og  fengu allir nemendur skólans skóinn þar sem allir voru svo duglegur í átakinu ,,Göngum í skólann".

Kaupfélag Steingrímsfjarðar bauð öllum upp á niðurskorna ávexti og grænmenti og Arion banki bauð upp á vatn í sjómannsbrúsa.


Á fimmtudeginum var tölvutími. Ég skipti hópnum í tvennt, helmingurinn fór í tölvur á meðan hinir voru í vali. Tölvuhópurinn vann verkefni inn á náms.is um samhljóða á meðan léku hinir sér að legokubbum.


Á föstudeginum byrjuðum við á þemaverkefninu ,,Allt um mig og þig"  Við fórum aðeins í það hvernig við urðum til. Við fengum meðal annars að vita að fóstrið er ca. 6 mm þegar það hefur verið í maganum á ,,mömmu" sinni í mánuð, að á öðrum mánuði er fóstrið farið að líkjast barni, með örlitla handleggi, fótleggi, augu og eyru að myndast. Að á sjötta mánuði er barnið farið að sparka svo að móðirin finnur greinilega fyrir því og að í lok áttunda mánaðarins breytir barnið um stöðu og snýr nú höfðinu niðu


Við fórum líka í tónmennt, skrifuðum okkar eigið tónverk og frumfluttum það í lok tímans.

 

Takk fyrir vikuna, Kveðja Vala

Eldri fćrslur
Nemendur Atburđir
« Maí 2012 »
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nćstu atburđir

Vefumsjón