Hildur Guđjónsdóttir | 21. nóvember 2011 |

ADHD vika

Dagarnir 23. - 30. nóvember í Grunnskólanum á Hólmavík verða helgaðir fróðleik um ADHD, sem er athyglisbrestur og ofvirkni. Skipulagning stendur yfir og munum við, Hildur Guðjónsdóttir og Jóhanna Hreinsdóttir, annast undirbúninginn í samvinnu við starfsmenn skólans, foreldra og aðra áhugasama. Markmið með verkefninu er að auka fræðslu og skilning okkar á ADHD röskun sem leiðir til betri hegðunar, líðan og viðhorfi allra í samfélaginu. Við viljum byggja upp jákvætt og uppbyggjandi umhverfi fyrir einstaklinga með ADHD þannig að þeir fari út í framtíðina með góða sjálfsmynd sem er forsenda velgengni. Við viljum stuðla að því að því að börnin bíði ekki stöðuga ósigra í daglegu lífi heldur mæti stuðningi og umfram allt skilningi. Við berum öll ábyrgð og getum lagt okkar að mörkum með því að sýna jákvætt viðmót, hrós og viðurkenningu á ADHD.

Í ADHD vikunni ætlum við að reyna að auka vitund og fræðslu um ADHD með því að virkja alla nemendur og starfsfólk Grunnskólans á Hólmavík þannig að allir leggi eitthvað að mörkum til vitundarvikunnar. Við ætlum að vinna með viðfangsefnið á heildstæðan hátt og samþætta það hluta af námi og kennslu skólans í eina viku. Í tilefni af ADHD vikunni stöndum við fyrir námskeiðinu Skólaganga barna með athyglisbrest og ofvirkni, námskeið fyrir kennara og annað starfsfólk grunnskóla. Námskeiðið verður haldið í fjarfundi
. Kennslu í 1. - 6. bekk lýkur því klukkan 12:20 á fimmtudag og föstudag og kennslu í 7. - 10. bekk lýkur klukkan 11:50 báða dagana.

Hildur Guđjónsdóttir | 14. nóvember 2011 |

Sigurvegarar myndbandakeppni 66°NORĐUR

Sigurhópurinn ásamt Arnari kennara, ađstandendum keppninnar og Katrínu menntamálaráđherra.
Sigurhópurinn ásamt Arnari kennara, ađstandendum keppninnar og Katrínu menntamálaráđherra.
Þau ánægjulegu tíðindi bárust í vikunni að Grunnskólinn á Hólmavík hefði farið með sigur af hólmi í eldri flokki kvikmyndakeppni 66°NORÐUR og Grunnskólanna árið 2011. Sérstök dómnefnd valdi sigurvegara, en í niðurstöðu hennar skipti netkosning fyrir almenning einnig talsverðu máli. Dómnefndin var skipuð Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra, Hilmari Oddssyni, rektor Kvikmyndaskóla Íslands, Sigurjóni Sighvatssyni kvikmyndagerðarmanni og Sverri Þór Sverrissyni (Sveppa).

Verðlaunaafhending fór fram í verslun 66°NORÐUR Faxafeni 12, núna á laugardaginn kl 11:00 og fjölmenntu nemendur og aðstandendur þeirra sem að sigurmyndbandinu unnu auk Arnars S. Jónssonar tómstundafulltrúa og stundarkennara og Hildar Guðjónsdóttur aðstoðarskólastjóra. Unnu nemendur hver fyrir sig 20 þúsund króna úttekt í verlsun 66°NORÐUR ásamt því að vinna veglega Sony myndbandsupptökuvél og blómvönd fyrir skólann. Stöð 2 var á staðnum og tók viðtöl sem sjá má hér. Einnig mátti lesa fréttir um þetta á hinum ýmsu vefmiðlum. Myndin fjallar á gamansaman hátt um raunir ungs bensínafgreiðslumanns sem þarf að berjast við kuldabola, skrítna viðskiptavini og latan samstarfsmann. Hægt er að sjá sigurmyndbandið með því að smella hér.

Við erum afar stolt af okkar fólki og óskum öllum innilega til hamingju með sigurinn!
Hildur Guđjónsdóttir | 10. nóvember 2011 |

Skipulagsdagur og foreldraviđtöl

Í dag fimmtudaginn 10. nóvember er skipulagsdagur starfsmanna skólans og því frí hjá nemendum. Á skipulagsdeginum verður m.a. fjallað um nemendaverndarráð, fyrirhugaða ADHD-viku skólans, eineltismál, samskipti nemenda, unnið að vitnisburðum nemenda, foreldraviðtöl undirbúin og fleiri fagleg mál.

 

Á föstudaginn 11. nóvember eru svo foreldraviðtöl í Grunn- og Tónskólanum þar sem foreldrar og forráðamenn fá viðtal með umsjónarkennara og tónlistarkennara barna sinna og fara yfir stöðuna eftir haustönnina, líðan og fleira. Þann dag er frí hjá nemendum.

 

Nemendur hafa fengið miða með sér heim þar sem fram kemur hvenær hver á að mæta. Einnig hafa upplýsingar um það borist með tölvupósti og eru aðgengilegar hjá riturum skólans í s. 451-3129. Hlökkum til að sjá ykkur.

Hildur Guđjónsdóttir | 07. nóvember 2011 |

Lestrarvika Arion banka og Disney

Krakkar á öllum aldri eru hvattir til þess að vera með í Lestrarviku Arion banka og Disney. Markmiðið er að hvetja krakka til að vera duglegir að lesa skemmtilegar bækur og skólaefni. Ekki skiptir máli hvað er lesið; skáldsögur, teiknimyndasögur, skólabækur, Andrés blöð eða annað skemmtilegt lesefni. Allt telst með. Nöfn þeirra sem skrá lestur sinn fara í pott og í lok vikunnar verða dregnir úr honum yfir 100 þátttakendur sem fá veglegan vinning. Á meðal vinninga er Disney kökubókin, Disney áskriftir og fleira. Við munum líka draga út skemmtilegan vinning daglega á meðan lestrarvikunni stendur og í lok vikunnar verður Lestrarhestur Arion banka valinn. Lestrarhesturinn hlýtur Ipad í verðlaun. Smellið hér til að skrá ykkur!

Hildur Guđjónsdóttir | 04. nóvember 2011 |

Er Jón okkar jólastjarna Stöđvar 2 og N1?

Jólastjarnan okkar, Jón Stefánsson.
Jólastjarnan okkar, Jón Stefánsson.

Jón Stefánsson, nemandi okkar í 7. bekk, sá auglýsingu í sjónvarpinu þar sem Stöð 2, N1 og Sena standa fyrir söngkeppninni fyrir unga snillinga þar sem sigurvegarinn kemur fram á stærsta sviði landsins með aragrúa af íslenskum og erlendum stjörnum laugardaginn 3. desember á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins.

 

Jón var einn af tæplega fjögur hundruð sem sendu inn myndband og söng hann lag Sálarinnar Þú fullkomnar mig af sinni alkunnu list. Af þessum fjögur hundruð voru valdir fimmtán sem komu og sungu fyrir dómnefndina í eigin persónu um síðustu helgi og var Jón okkar einn af þeim. Þar söng Jón lagið Farin sem hjómsveitin Skítamótall gerði vinsælt og lagið Villikötturinn eða Ben með Michael Jackson. Í dómnefndinni sitja Björgvin Halldórsson, Gunnar Helgason, Jóhanna Guðrún og Jóhannes Haukur Jóhannesson.

 

Ljóst var að krakkarnir fimmtán eru mikið hæfileikafólk og hefur dómnefndin enn ekki komist að niðurstöðu. Jón á þó von á svari von bráðar. Sjónvarpsvélar frá Stöð 2 voru á staðnum og fylgdust með áheyrnarprufunum, herlegheitin verða sýnd í kvöld, föstudag, í Íslandi í dag. Til hamingju með árangurinn Jón og gangi þér vel!

Hildur Guđjónsdóttir | 03. nóvember 2011 |

Myndbandakeppni 66° NORĐUR.

Nú tökum við þátt annað árið í röð í Myndbandakeppni 66° NORÐUR. Það voru þau Brynja Karen, Fannar Freyr, Gunnur Arndís, Ísak Leví, Margrét Vera, Sara, Sigfús Snævar, Stella Guðrún og Sunneva Guðrún sem tóku upp og unnu myndbandið í kvikmyndavali hjá Arnari S. Jónssyni. Afraksturinn er glæsilegt, flott og skemmtilegt myndband sem við teljum að eigi góða möguleika á að sigra keppnina í ár. Netkosning stendur yfir frá 2. nóvember - 6. nóvember. Við tökum þátt í eldri flokki og myndbandið okkar er NÚMER 8.

 

Hér má sjá myndbandið og kjósa.

Hildur Guđjónsdóttir | 02. nóvember 2011 |

Frábćrir ţemadagar!

Sigurjón Snćr einbeittur viđ smíđavinnu í smiđju á ţemadögum.
Sigurjón Snćr einbeittur viđ smíđavinnu í smiđju á ţemadögum.
Á föstudaginn var opið hús hjá okkur sem var lokadagur og í raun lokahóf þemadaga okkar sem voru dagana 26. - 28. október sl. Smiðjurnar vöktu mikla lukku í fyrra og var því ákveðið að halda svipuðu sniði í ár. Hefðbundið skólastarf var brotið upp þessa daga og nemendur unnu í sjö aldursblönduðum smiðjum sem kennararnir okkar og starfsfólkið okkar hafði veg og vanda að skipuleggja og framkvæma með aðstoð annarra starfsmanan skólans. Nemendur fengust við skemmtileg verkefni í smiðjunum Ljósmyndarallý, Prjónað af hjartans list, Tónlistarsmiðju, Freestyle-danssmiðju, Smíðasmiðju, Skrautskrift og sögur og Leiklist og ljóð. Mikil ánægja var með starfið og mátti greina mikla gleði og góðan vinnuanda í húsinu. Markmið þemadaga er að efla fjölbreytileika í skólastarfinu og teljum við það hafa tekist vel. Afraksturinn var virkilega skemmtilegur og sýnilegur á opna húsinu og var gaman að sjá hve margir sáu sér fært að kíkja við, fá sér vöfflu og heitt kakó og gleðjast með okkur. Hér má sjá myndir frá þemadögunum.
Hildur Guđjónsdóttir | 27. október 2011 |

Ađalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík

Hressir krakkar í 3. bekk
Hressir krakkar í 3. bekk

Áttu barn í Grunnskólanum á Hólmavík? Þá máttu ekki missa af þessu!

 

Í kvöld, fimmtudaginn 27. október kl. 18:00 verður aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík haldinn í Félagsheimilinu á Hólmavík. Auk þess að kjósa nýja stjórn verður fjallað um hvernig efla megi samstarf foreldra, barna og skóla.

 

Á dagskrá er skemmtilegt erindi um samskipti foreldra og barna, pizzur í boði Foreldrafélagsins og almenn fundarstörf.

Kl. 18:00-18.30 Krísusögur: Arnar S. Jónsson, tómstundafulltrúi Strandabyggðar flytur fræðandi og skemmtilegt erindi um samskipti foreldra og barna.

 

Kl. 18:30-19:00 Matarhlé. Pizzur í boði Foreldrafélagsins, ókeypis fyrir fundargesti.

 

Kl. 19:00 - 20:00 Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans við Hólmavík.

1. Skýrsla stjórnar

2. Reikningar síðasta starfsárs

3. Kosning stjórnar, bekkjarfulltrúa og skoðunarmanna

4. Stutt umfjöllun um samráðsfundi, bekkjarkvöld og skólaárið 2011 - 2012

5. Önnur mál

 

Sjáumst hress!

Bjarni Ómar Haraldsson | 26. október 2011 |

1. fundur Skólaráđs

Skólaráð Grunnskólans á Hólmavík hélt sinn fyrsta fund á þessu skólaári fimmtudaginn 20. október s.l. Skólaráð er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélagsins um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar t.d. um skóladagatal, skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun og aðrar áætlanir sem gerðar eru um skólastarfið. Skólaráð fær til  umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar sem kunna að verða á skólahaldi og starfsemi skólans áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist einnig almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.

Nýjir fulltrúar í Skólaráði eru Margrét Vera Mánadóttir sem er nýr fulltrúi nemenda og tekur hún við keflinu af Arnóri Jónssyni sem útskrifaðist frá skólanum vorið 2011 og nýr fulltrúi kennara, Jóhanna Ása Einarsdóttir, kemur inn í ráðið í stað Hrafnhildar Guðbjörnsdóttur.

Á þessum fyrsta fundi sínum samþykkti Skólaráð funda- og starfsáætlun fyrir skólaárið 2011 - 2012. Á fundinum var einnig rætt um þá reynslu sem komin er á Skjatta, áformakerfið sem tekið var upp í haust og stöðu heimanáms í nýjum áherslum í skólastarfinu. Mikilvægustu málin sem lágu fyrir fundinum sneru annarsvegar að breytingum sem gerðar hafa verið til samræmingar á öllu námsmati skólans og hinsvegar að endurskrifaðri Skólanámskrá Grunnskólans, en skólastjórnendum er skylt að leggja skólanámskrá fyrir Skólaráð til umsagnar á hverju skólaári og kynna hana fyrir aðilum skólasamfélagsins. Skólanámskráin hefur verið í endurskoðun frá því nýjir skólastjórnendur tóku við skólanum haustið 2010. Skólanámskráin verður  kynnt skólasamfélaginu um leið og Skólaráð og Fræðslunefnd Strandabyggðar hafa lokið lögbundnu umsagnarferli.

Upplýsingar um Skólaráð, fundargerðir o.fl. má nálgast á heimasíðu skólans undir tenglinum Skólaráð á vefslóðinni: http://www.strandabyggd.is/skolarad/

 

Hildur Guđjónsdóttir | 20. október 2011 |

Smiđjur - ţemadagar

Ţessar dömur ćtla ađ taka ţátt í smiđjum á ţemadögum :)
Ţessar dömur ćtla ađ taka ţátt í smiđjum á ţemadögum :)
Þemadagar í Grunnskólanum á Hólmavík verða í næstu viku - á miðvikudag, fimmtudag og föstudag 26.-28. október nk.

Ákveðið hefur verið að bjóða upp á sjö smiðjur:
1. Ljósmyndarallý,
2. Prjónað af hjartans list,
3. Tónlistarsmiðju,
4. Freestyle-danssmiðju,
5. Smíðasmiðju,
6. Skrautskrift
7. Sögur, leikrit og ljóð.

Nemendur fá valblöð heim með sér í dag, fimmtudaginn 20. október, þar sem hver og einn nemandi velur sér þrjár smiðjur og fer í eina smiðju á miðvikudegi, aðra smiðju á fimmtudegi og þriðju smiðjuna á föstudegi. Vinsamlega skilið valblöðum til umsjónarkennara á morgun, föstudaginn 21. október. Á þriðjudaginn 25. október, fá nemendur upplýsingar og skipulag um alla þrjá dagana með sér heim. Í hverri smiðju eru hópstjórar (2-3 starfsmenn) sem vinna við sömu smiðju alla þrjá dagana og halda utan um nemendahópinn sem heimsækir smiðjuna hvern dag.

Með von um skemmtilega smiðju-þemadaga!
Eldri fćrslur
Nemendur Atburđir
« Maí 2012 »
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nćstu atburđir

Vefumsjón