A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Fræðslunefnd 8. október 2020

Fundur var haldinn í fræðslunefnd fimmtudaginn 8. október kl. 17.00 í Hnyðju. Eftirtaldir nefndarmenn mættu: Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir, Guðfinna Lára Hávarðardóttir, Vignir Rúnar Vignisson og Guðjón H. Sigurgeirsson í forföllum Steinunnar Þorsteinsdóttur.


Fulltrúar skólans mættu kl. 17:00 en það eru Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skólastjóri, Kristín Anna Olsen fyrir hönd starfsmanna leikskóladeildar og Anna Björg Þórarinsdóttir fyrir hönd foreldra leikskóladeildar.
Fulltrúi ungmennaráðs Unnur Erna Viðarsdóttir boðaði forföll.


Dagskrá:

1. Skólanámskrá – Deildarnámskrár

Skólanámskráin er á heimasíðu skólans. Nauðsynlegt er að sameina heimasíður deildanna í eina heimasíðu fyrir sameinaðan skóla.

Skólastjóri kynnir skólanámskrá og deildarnámskrá leikskóladeildar.

2. Staða sameiningarmála

Stuðst er við lýsingu frá Tröppu varðandi verkefni sameiningarferlisins. Verkefnum sem tímasett voru á vorönn 2020 er að mestu lokið en Skólaþing hefur frestast vegna Covid-19 og vinna við starfsmannasáttmála fer af stað núna í október. Verkefni sem tímasett eru á haustönn 2020 eru komin vel af stað og sumum þegar lokið.


3. Stöðugildi og nýting starfsmanna

Stöðugildi við sameinaðan skóla eru 23,95. Starfsmenn færast milli leik og grunnskóladeildar í samræmi við áætlun.

4. Önnur mál
Engin önnur mál.

Fundi slitið kl. 18.36

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón