A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Móttaka refaskotta 1. september 2011

| 24. ágúst 2011
Mynd af vefnum www.vestfirdir.is
Mynd af vefnum www.vestfirdir.is
Fimmtudaginn 1. september 2011 verður tekið á móti refaskottum fyrir grenjaveiði vorið 2011 og vetrarveiði 2010-2011 í Sorpsamlagi Strandabyggðar milli kl. 10:00 - 12:00. Veiðimenn á skilgreindum veiðisvæðum skila skottum samkvæmt reglum um refaveiðar sem samþykktar voru í sveitarstjórn Strandabyggðar í maí 2011, sjá hér. Veiðitímabil í Strandabyggð hefst 1. september ár hvert og lýkur 31. ágúst....
Meira

Auglýsing um bifreiðaskoðun á Hólmavík

| 24. ágúst 2011
Auglýsing Frumherja hf. um afgreiðslutíma færanlegrar stöðvar 2011.
Nú er komið að síðari ferð færanlegu skoðunarstöðvarinnar um landið. Skoðanir verða sem hér segir:

Hólmavík 13. - 14. september 2011.

Færanlega skoðunarstöðin er nú beintengd við ökutækjaskrá og því hægt að afla allra upplýsinga og gagna frá viðskipum eins og í fastri skoðunarstöð. Tekið er á móti öllum geiðslukortum (kredit og debet). Hvorttveggja er háð því að gsm-samband sé í lagi.

Færanleg skoðunarstöð Frumherja hf. sími: 892 4507.

Varaoddviti Strandabyggðar fær Landstólpann

| 23. ágúst 2011
Myn af vef Byggðastofnunar. Á henni eru auk Jóns, Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar og Anna Kristín Gunnarsdóttir fráfarandi formaður stjórnar.
Myn af vef Byggðastofnunar. Á henni eru auk Jóns, Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar og Anna Kristín Gunnarsdóttir fráfarandi formaður stjórnar.
« 1 af 2 »
Á ársfundi Byggðastofnunar á Sauðárkróki í gær var í fyrsta sinn afhent samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar - Landstólpinn, en ætlunin er að sú viðurkenning verði afhent árlega í framtíðinni. Óskað var eftir tilnefningum um einstakling, fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag, síðastliðið vor. Sérstök dómnefnd fór síðan yfir tilnefningar sem bárust og ákvað að veita Jóni Jónssyni á Kirkjubóli, menningarfulltrúa Vestfjarða, viðurkenninguna að þessu sinni.  

Í rökstuðningi kom fram að um nokkurs konar bjartsýnisverðlaun væri að ræða og að Jón hafi með störfum sínum vakið jákvæða athygli á sinni heimabyggð og verið ötull talsmaður ferðaþjónustu og menningar á Vestfjörðum. Þá sé hann virkur í félagsstarfi og menningarlífi og að auki frumkvöðull í uppbyggingu ferðaþjónustu, menningarstofnana og fræðastarfs á svæðinu...
Meira

Starfsdagar, sveitarstjórnarfundur og nefndarfundir

| 23. ágúst 2011
Sveitarstjórn Strandabyggðar. Mynd Brian Berg.
Sveitarstjórn Strandabyggðar. Mynd Brian Berg.
Helgina 27. - 28. ágúst n.k. verða haldnir starfsdagar sveitarstjórnar Strandabyggðar þar sem litið verður yfir farinn veg og stefna mótuð til framtíðar. Horft verður til næstu 10 ára og í framhaldi af því sett niður skýr markmið til næstu þriggja ára. Sveitarstjórnarfólk af J-lista og V-lista Vinstri grænna tekur þátt í stefnumótunarvinnu laugardaginn 27. ágúst. 
...
Meira

100% starf í leikskólanum Lækjarbrekku

| 22. ágúst 2011
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í fullt starf. Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Við leitum eftir öflugu fólki sem hefur gaman af að starfa með börnum, er jákvætt og býr yfir góðri samskiptahæfni.

 


Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@holmavik.is

...
Meira
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón