A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Jólaföndur Foreldrafélagsins mánudaginn 28. nóvember

| 27. nóvember 2011
Mynd af vef Grunnskólans á Hólmavík
Mynd af vef Grunnskólans á Hólmavík
Jólaföndur Foreldrafélagsins verður haldið mánudaginn 28. nóvember kl 18:00 í FÉLAGSHEIMILINU.

Í ár ætlum við að mála á keramik:
- Fólki gefst kostur á að kaupa eina keramikstyttu til þess að mála á kr. 1.500.
- Innifalið í verði er afnot af málningu og penslum sem verða á staðnum (ef að fólk á pensla má það gjarnan hafa þá meðferðis).
- Ef að fólk vill koma og föndra eitthvað annað er það velkomið, t.d jólakort eða það sem fólki dettur í hug....
Meira

Ljósmyndasýning í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík

| 27. nóvember 2011
Katla Kjartandóttir verkefnastjóri hjá Þjóðfræðistofu tekur við menningarverðlaunum Strandabyggðar 2011 fyrir Skelina.
Katla Kjartandóttir verkefnastjóri hjá Þjóðfræðistofu tekur við menningarverðlaunum Strandabyggðar 2011 fyrir Skelina.
Fjöldi fólks lagði leið sína í Íþróttamiðstöðina á Hólmavík í gær þar sem ljósmyndasýning Haraldar Auðunssonar eðlisfræðings var opnuð. Haraldur sem er gestur Þjóðfræðistofu í Skelinni var kennari við Grunnskólann á Hólmavík 1976-1977 og heldur nú sýningu á ljósmyndum sínum frá þeim tíma. Á sýningunni eru gestir hvattir til að merkja alla þá sem þeir þekkja á myndunum. Haraldur hefur einnig staðið fyrir eðlisfræðiverkefni fyrir 9. og 10. bekk Grunnskólans á Hólmavík undanfarna daga en Þjóðfræðistofa og gestir í Skelinni hafa verið í skemmtilegu samstarfi við skólann í haust.

Starf forstöðumanns/bókavarðar Héraðs- og skólabókasafns

| 26. nóvember 2011
Bókasafnsnefnd Héraðsbókasafns Strandasýslu og Grunnskólinn á Hólmavík auglýsa laust til umsóknar 50% starf forstöðumanns/bókavarðar Héraðs- og skólabókasafnsins á Hólmavík. Bókasafnið er til húsa í Grunn- og tónskólanum á Hólmavík.

 

Helstu verkefni

- Umsjón með útlánum og innkaupum á bókum

- Skráning á bókum og öðrum gögnum í Gegni

- Upplýsingatækni og safnfræðsla fyrir nemendur í 1. - 10. bekk

- Samskipti við aðra skóla á Ströndum og önnur bókasöfn

- Viðburðir á vegum safnsins og samvinnuverkefni með skólastofnunum

- Rekstur bókasafnsins

- Önnur verkefni sem næsti yfirmaður felur honum í tengslum við starfsemi skóla eða safnsins

- Þátttaka í símenntunaráætlun skóla

 

Endurskipulagning á starfinu og rekstrarumhverfi safnsins fer fram á næstu 9 mánuðum og hefur starfsmaður möguleika á að taka þátt í spennandi þróunarvinnu.

 

Menntunarkröfur

- Æskilegt er að starfsmaður sé með menntun í bóksafns- og upplýsingafræðum eða öðrum skyldum greinum

 

Hæfniskröfur

- Leitað er að drífandi einstaklingi sem á auðvelt með mannleg samskipti og er jákvæður og skapandi

 

Ráðningarkjör

- Laun eru samkvæmt kjarasamningum

Starfsmaður heyrir undir skólastjórnendur og bókasafnsnefnd Héraðsbókasafns Strandasýslu. Bókasafnsnefnd er skipuð fimm fulltrúum. Héraðsnefnd skipar tvo fulltrúa og sveitarfélagið Strandabyggð þrjá fulltrúa.

 

Starfið er laust frá áramótum. Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2011.

 

Vinsamlegast sendið umsókn ásamt ferliskrá til Grunnskólans á Hólmavík eða á netfangið skolastjorar@holmavik.is. Nánari upplýsingar veitir Bjarni Ómar Haraldsson skólastjóri í síma 451 3129.

Umsókn um útvíkkun og stækkun á eldisleyfi í Ísafjarðardjúpi

| 26. nóvember 2011
Mynd af www.bb.is
Mynd af www.bb.is
Hraðfrystihúsið Gunnvör hf., í Hnífsdal hefur staðið að uppbyggingu fiskeldis á starfssvæði sínu í Ísafjarðardjúpi allt frá árinu 2002. Í dag er fyrirtækið með sjókvíaeldi í Álftafirði og Seyðisfirði og eina tilraunakví í Skötufirði ásamt seiðaeldisstöð á Nauteyri í Ísafirði. Í Súðavík er miðstöð sjókvíaeldisstarfseminnar með sláturhúsi, fóðurgeymslu og þjónustuaðstöðu á hafnarsvæðinu. Þar er einnig heimahöfn þjónustubáta starfseminnar sem eru sérhæfðir fyrir flutning á lifandi fiski, fóðrun og veiða til áframeldis á þorski. Einar Valur Kristjánsson framkvæmdastjóri HG segir að áætlanir um þorskeldi, bæði hér og í Noregi, hafi ekki gengið eftir eins hratt eins áætlanir gerðu ráð fyrir....
Meira

Áfallateymi skipað í Strandabyggð

| 24. nóvember 2011
Mynd JJ.
Mynd JJ.
Áfallateymi hefur verið skipað í Strandabyggð. Áfallateymið heyrir undir Velferðarsvið og er skipað 5 aðalmönnum og 3 varamönnum:

Aðalmenn
Anna Guðlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur
Arnar Jónsson tómstundafulltrúi
Hildur Jakobína Gísladóttir félagsmálastjóri
Sigríður Óladóttir prestur
Victor Örn Victorsson fyrrverandi skólastjóri

Varamenn
Hildur Guðjónsdóttir aðstoðarskólastjóri
Hlíf Hrólfsdóttir sérkennslu- og deildarstjóri
Sverrir Guðmundsson lögreglumaður
...
Meira
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón