A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Dýralæknir á Hólmavík

| 12. nóvember 2012
Köttur - ljósm. ASJ
Köttur - ljósm. ASJ
Gísli Sverrir Halldórsson dýralæknir í Búðardal mun sinna hreinsun á skráðum hundum á Hólmavík miðvikudaginn 14. nóvember n.k. Gísli verður við störf í áhaldahúsi Strandabyggðar milli kl. 16:00 og 18:00. Kattareigendur eru einnig minntir á nauðsyn þess að láta hreinsa ketti sína. Slík hreinsun er þó ekki innifalin í leyfisgjaldi. 

Þeir sem óska eftir annari dýralæknisþjónustu er velkomið að hafa samband við Gísla í síma 434-1122 eða 862-002.

Sveitarstjórnarfundur 1202 í Strandabyggð

| 09. nóvember 2012
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Strandabyggðar þriðjudaginn 13. nóvember 2012, kl. 16.00 í Hnyðju

Hér má sjá dagskrá fundarins.

Hulda Ingibjörg ráðin skólastjóri Grunn- og Tónskólans

| 09. nóvember 2012
Hulda Ingibjörg er nýr skólastjóri Grunnskólans á Hólmavík
Hulda Ingibjörg er nýr skólastjóri Grunnskólans á Hólmavík
Hulda Ingibjörg Rafnarsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Grunn- og tónskólans á Hólmavík í tímabundna stöðu til vors 2013. Hulda var ráðin aðstoðarskólastjóri í ágúst síðastliðnum, en Hildur Guðjónsdóttir sem tók við starfi skólastjóra um svipað leyti hefur sagt upp og látið af störfum. Hulda Ingibjörg er fædd árið 1965 og er útskrifaður grunnskólakennari frá Kennaraháskóla Íslands árið 1995 og hefur einnig lokið námi í kerfisfræði. Hulda er með diplómu í menningarstjórnum frá Háskólanum á Bifröst og fæst nú við skriftir á MA-ritgerð. Hún hefur víðtæka og fjölbreytta kennslureynslu, t.d. við Vatnsendaskóla í Kópavogi, Grunnskólann á Blönduósi og einnig við kennslu og verkefnastjórn við Háskólann á Bifröst.

Eineltisáætlun fyrir starfsmenn Strandabyggðar

| 09. nóvember 2012
Seiður - ljósm. JJ
Seiður - ljósm. JJ
Velferðarnefnd Stranda og Reykhólahrepps hefur samþykkt eineltisáætlun fyrir starfsmenn allra sveitarfélaga á starfssvæði nefndarinnar. Áætlunina má sjá með því að smella hér.

Meginmarkmið hennar snúast um að starfsfólk sveitarfélaganna sé öruggt í sínu vinnuumhverfi, sé meðvitað og upplýst um hvaða hegðun er óviðunandi á vinnustað þess, geti dregið úr hættu á einelti, þekki boðleiðir og sé meðvitað um málsmeðferð í eineltis- og áreitnismálum á sínum vinnustað. 

Styrkir vegna námskostnaðar eða verkfærakaupa

| 09. nóvember 2012
Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki skv. 27. grein laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum. Byggðasamlaginu er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing.

Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfssemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu.


Umsóknarfrestur er til 20. nóvember 2012. Umsóknir á Ströndum skulu berast til félagsþjónustu Stranda og Reykhóla. Umsóknareyðublöð má nálgast hjá félagsþjónustunni, en með því að smella hér má sjá reglur um styrkina.

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón