Strandabyggð gerir verðkönnun fyrir innkaup og uppsetningu á gluggum og hurðum í Grunnskólann á Hólmavík.
Þorgeir Pálsson | 08. júní 2023
Strandabyggð gerir verðkönnun varðandi glugga og hurðir í grunnskólanum. Búið er að meta ástand glugga og hurða af fagaðilum.
VERKÍS hefur gert verklýsingu, magnskrá og kostnaðaráætun og eru þessi gögn aðgengileg hjá sveitarstjóra. Áhugasamir hafi samband við Þorgeir í síma 899-0020 eða á netfangið thorgeir@strandabyggd.is
Áhugasamir skulu skila inn verðhugmyndum á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið thorgeir@strandabyggd.is, merkt „grunnskóli – gluggar og hurðir“, fyrir kl 16, fimmtudaginn 22. júní n.k.
Allar frekari upplýsingar veitir Þorgeir í síma 899-0020.