A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Kjörskrá og kjörfundur vegna kosninga til embættis forseta Íslands 25. júní 2016

| 24. júní 2016

Kjörskrá liggur frammi til kynningar í afgreiðslu Strandabyggðar í Hnyðju Höfðagötu 3 Hólmavík,fram að kjördegi en einnig getur fólk farið inn á slóðina http://www.kosning.is  til að kynna sér hvar það er skráð.

 

Kjörfundur vegna kosninga til embættis forseta Íslands

Ein kjördeild verður í Strandabyggð og verður kjörstaður í  Hnyðju, Höfðagötu 3 Hólmavík.   
 

Kjörfundur hefst kl. 09:00  laugardaginn 25. júní 2016 en kjörstaður verður opinn frá kl. 10:00 -17:00 . Sbr. 1. mgr. 89 gr. laga nr. 24/2000  um kosningar til Alþingis, samanber 3.mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 um framboð og kjör forseta Íslands.

Sérstök athygli kjósenda er vakin á  1. mgr. 79 gr. laga nr. 24/2000  um kosningar til Alþingis, samanber 3.mgr. 6. gr. laga nr. 36/1945 um framboð og kjör forseta Íslands:

,,Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér svo sem með því að segja til sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörstjórninni afhendir kjörstjórn honum einn kjörseðil".


Oddviti kjörstjórnar Strandabyggðar,
Guðmundur Jónsson

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón