A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Félagadagur 2.nóvember

| 07. október 2019
Vissir þú að í sveitarfélaginu Strandabyggð eru 16 félög? Veistu hvaða starfsemi fer fram í þessum félögum? 

Félagadagur verður haldinn 2.nóvember kl.12.00 - 16.00 í Félagsheimilinu á Hólmavík. Á þessum degi gefst félögum tækifæri til að kynna sig og sína starfsemi. Ekki er um að ræða framsögn/ræður heldur er þetta í formi "Bása" (svæða) sem hvert félag hefur til umráða.
16 félög/hópar eru hér í sveitarfélaginu, nokkur eru búin að skrá sig og vil ég hvetja þau sem eiga það eftir, að tilkynna þátttöku til tómstundafulltrúa.

Aðalbjörg S. Sigurvaldadóttir
Tómstundafulltrúi

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón